Um þróun markaða fyrir hvalkjöt í Japan

This is the lede paragraph for the blog post. It should be populated with dynamic data from a WYSIWYG custom field assigned to your posts.

Birt í Lífríki sjávar

Bent hefur verið á að sala hvalkjöts í Japan hafi verið dræm undan farin ár. Árið 2012 skiptist salan með eftifarandi hætti:

Heildarsala hvalkjöts í Japan 2012

3350,7

tonn

100%

Afurðir vegna vísindaveiða Japana

2472,4

74%

Afurðir hvals hf. frá 2009 eða 2010

878,3

26%

Áætlað magn afurða Hvals hf. árið 2013 (154 dýr)

1850,0

aukning um 210%

Í upphafi þessa árs voru birgðir hvalkjöts 4700 tonn eða 1,4 sinnum það magn sem seldist í fyrra.

Línurit yfir þróun 10 helstu markaða fyrir hvalkjöt í Japan frá árinu 1974:

Fátt bendir til að Eyjólfur muni hressast.

Miðað við að heildarsalan var 3550,7 tonn í fyrra verður að teljast harla hæpið að Kristjáni Loftssyni takist að selja 1850 tonn af hvalaafurðum í Japan á einu ári – fyrir næstu vertíð 2014 – sem er aukning um 210%. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum er „… hluti aflans frá vertíðunum 2009-10 er enn óseldur og geymdur í frystigeymslum þar í landi.”

Erftitt er að segja til um hverjir hagsmunir Kristjáns Loftssonar eru í þessu máli. Á hinn bóginn hafa áhugamál hans ekkert með hagsmuni Íslands að gera. Er ekki tími til kominn að stjórnvöld tali um fyrir manninum? Bendi honum á að nú sé nóg komið.

Birt

25. ágúst 2020
Aftur á forsíðu