Reykjavík 6. mars 2025
EFTA-dómstóllinn hefur með ráðgefandi áliti sem kveðið var upp í gær, miðvikudaginn 5.
mars, hafnað túlkun norska ríkisins á hugtakinu „brýnir almannahagsmunir“ í skilningi
vatnatilskipunar Evrópuþingsins. Til að raska eða umturna með afdrifaríkum afleiðingum
vatnsauðlindinni og umgjörð vatns þarf sérstaka undanþágu frá vatnatilskipuninni og réttlæta
þarf hana með vísun til „brýnna almannahagsmuna“. Vatnatilskipunin hefur verið innleidd í
lög bæði í Noregi og á Íslandi með lögum um stjórn vatnamála. Þessi niðurstaða dómstólsins
hefur áhrif á öllu EES svæðinu og þar með á Íslandi.
Niðurstaða dómstólsins er að „hreinar efnahagslegar ástæður, svo sem efling þjóðarbús“,
teldust ekki réttlætingar í skilningi tilskipunarinnar sem brýnir almannahagsmunir. Jafnframt
segir í áliti dómsins „að fjármagnstekjur, laun eða hagnaður af skattheimtu teldist ekki til
brýnna almannahagsmuna.“
Bendir dómstóllinn um leið á að meta „þarf í hverju tilviki fyrir sig hvaða þættir skipta máli
þegar ákvarða þarf hvort brýnir almannahagsmunir séu til staðar.“
Tilefni álits EFTA-dómstólsins er mál sem rekið er fyrir áfrýjunardómstóli í Noregi. Í því
halda náttúruverndarsamtökin Naturvernforbundet og Natur og Ungdom því fram að leyfi,
sem norsk stjórnvöld veittu til námuvinnslu og förgunar námuúrgangs í Førdefjord, sé
ólögmætt þar sem það standist ekki kröfur vatnatilskipunarinnar. Norska ríkið heldur því hins
vegar fram að leyfið sé réttlætanlegt á grundvelli undantekningarreglunnar um „brýna
almannahagsmuni“, með skírskotun til efnahagslegs ávinnings, aukinnar atvinnusköpunar og
nauðsynjar þess að tryggður sé aðgangur að mikilvægum jarðefnum. Því hafnar EFTA-
dómstóllinn.
„Við teljum að með þessu skýra áliti EFTA-dómstólsins sé grundvöllur frumvarps umhverfis-
, orku- og loftslagsráðherra hruninn um að virkjanaflokkur rammaáætlunar ráði úrslitum um
hvaða virkjanakostir eigi að teljast til brýnna almannahagsmuna. Álit dómstólsins er
afgerandi, það verður að leggja mat á hvern virkjanakost fyrir sig,“ segir Snæbjörn
Guðmundsson, formaður Náttúrugriða.
Fréttatilkynningu EFTA-dómstólsins á íslensku má finna
hér: https://eftacourt.int/download/13-24-press-release-3/?wpdmdl=10417.