Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS, áður LÍÚ), Ólafur H. Marteinsson, sagði við Morgunblaðið 14. mars, að:
„Hvað loðnustofninn varðar þá liggur algerlega í augum uppi að menn þurfa að taka miklu meira tillit til afráns hvalastofna en gert hefur verið.“
En hann bætir við að hnúfubakur sé reyndar friðaður og því bannað að skjóta hann.
Alþjóðahvalveiðiráðið friðaði hnúfubak í Norður-Atlantshafi haustið 1954. Ísland gerði ekki fyrirvara við þá ákvörðun Hvalveiðiráðsins og er því bundið af henni. Ísland mótmælti hins vegar friðun steypireyðar ári síðar, en dró mótmælin til baka árið 1960 eftir að 37 steypireyðar höfðu verið skotnar í trássi við samþykkt ráðsins. …
Sjá alla greinina hér fyrir neðan: