Sjá í viðhengi bréf sent umhverfisráðherra 4. mars sl.
Í upphafi segir:
„Á blaðamannafundi hinn 11. september sl. sagði umhverfisráðherra:Þannig að ný ríkisstjórn tekur við erfiðu búi í loftslagsmálum og það er kominn tími á tiltekt í þessum málaflokki. Sem er nákvæmlega það sem við höfum verið að gera undanfarna mánuði. Hér í ráðuneytinu hefur farið fram mjög umfangsmikil greiningarvinna sem miðar að því að ná betur utan um stöðuna og varða leiðina áfram. Náttúruverndarsamtök Íslands óska eftir að fá upplýsingar um hvort þessi tiltekt sé hafin og hvenær sé gert ráð fyrir að henni ljúki. Mikið liggur við enda munu frekari tafir gera ráðherra ómögulegt að ná tilætluðum árangri.”

