Sjá nýja skoðanakönnun sem Maskína gerði fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands.
Segja má að þorri þjóðarinnar – 82 prósent – telji að hitamet og skógareldar í Evrópu séu að miklu leyti vegna loftslagsbreytinga. Sams konar könnun i Svíþjóð sýndi nýlega að 80% Svía séu sama sinnis.
Skelfilegir skógareldar sumarsins munu hafa áhrif á loftslagsstefnu Evrópusambandsins. Evrópusambandið eða ekki – Ísland á aðild að EES-samningnum og þar með er Ísland þátttakandi í loftslagsstefnu ESB.

